3.8.2007 | 14:24
Upptökumaður
Þær gleðifréttir voru að berast að náðst hafa samningar við myndatökumann og er hann í þessum blogguðum orðum að keyra vestur úr borg óttans. Staðið hefur verið í miklum og erfiðum samningaviðræðum við manninn, en hann hefur þótt einkar erfiður við að eiga og fór fram á frítt húsnæði og fæði fyrir sig og alla fjölskylduna á meðan á keppni stendur. Einnig gerði hann það að skilyrði að útveguð yrði barnfóstra fyrir son hans svo hann og hans kona gætu komið með á lokahóf Mýrarboltans 2007. Eftir miklar þrætur var þó látið undan þessum þörfum mannsins, sem og nokkrum öðrum sem viðsemjanda þóttu æði undarlegar. Hann vill t.d. bara gista í Fjarðarstræti Inn og fer hann fram á að keyptar verði tvær magnpakkningar af salernispappír á heimilið fyrir komu hans.
Þetta eru mikil og góð tíðindi þar sem myndatökumaður Mýrarboltans 2006 ætlar að vera með í að veltast í drullunni í ár.
Einnig hefur verið útvegaður svokallaður "upptökumaður", en hann mun sjá um að taka fólk upp úr drullunni skyldi það festast.
Glommarakveðjur,
The Man
Tenglar
Mikilvægir tenglar
Það sem skiptir máli
- Páll Önundarson
- Mýrarboltinn á Ísafirði Það sem málið snýst um
- Langi Mangi ehf. Kaffihúsið þar sem hlutirnir gerast
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 905
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.