Leita í fréttum mbl.is

Mýrarbolti 2008 uppgjör

Mýrarbolta 2008 er lokið og Glyðrur og Glommarar nokkuð sáttir með sitt. Veður var hið allra besta, sól og hiti og var það mikill munur frá því í fyrra þegar kuldinn og vosbúðin var algjör.

Glommar fóru upp úr riðlinum með 4 stig (unnu einn, eitt jafntefli og töpuðu einum)

Glyðrur fóru líka upp úr rilinum með 4 stig (unnu einn, eitt jafntefli og einn tapaður)

 Á sunnudeginum spiluðu Glyðrur í 8 liða úrslitum við efrópumeistara Gleðisveitar Gaulverjahrepps og töpuðu naumlega 0-1 eftir að hafa hafð í fullu tré við þær langt fram í seinni hálfleik. Gleðisveitin fór síðan alla leið og vann mótið fjórða árið í röð.

Glommarar spiluðu í 16 liða úrslitum við Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða og töpuðu mjög naumlega 0-1 en nokkra lykilmenn vantaði í lið Glommara þar á meðal markakóng liðsins sem ekki gat spilað þennan leik. Það fór svo að lokum að strákarnir í Aðskilnaðarsamtökunum unnu mótið nokkuð örugglega.

Sökum skemmtilegheita vorum við svo beðin um að spila góðgerðar/stjörnuleik við Veraldarvini sem við að sjálfsögðu gerðum og var þetta örugglega skemmtilegasti leikurinn á að horfa því að dómari leiksins var óspar á spjöldin. Einhverjir 7 eða 8 þurftu að kyssa á bágtið og 3 eða 4 spiluðu með hauspoka í 2 mínútur. Leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni sem fór í fimm spyrnur á hvort lið áður en dómarinn ákvað að leikurinn skildi enda jafntefli.

Ég held að bæði Glyðrur og Glommarar hafi skemmt sér hið besta alla helgina.

Gló magnaða fyrirliði & ljósmyndafyrirsæta Tounge


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Glyðrur og Glommarar
Glyðrur og Glommarar
Glyðrur og Glommarar eru karla- og kvennalið sem eru fulltrúar Langa Manga ehf. í Mýrarboltanum á Ísafirði.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband