25.7.2007 | 10:27
Nýjustu fréttir
Komið hefur í ljós að það er ekkert takmark á fjölda keppenda í hverju liði þannig að allir geta sótt um að vera í liðum Glyðru og Glommara á skraning.is svo kemur í ljós hvort fólki verður hafnað eða ekki. múahahahah.......
Minnum á gleðigjald liðanna sem er 2500 endilega að greiða það, helst í gær. Það á að dekka búninga og eitthvað af drykk og æti í okkar búðum (Camp-Langa).
Saumaskapur mun hefjast um leið og efnin berast okkur en þau eru föst í borg óttans. Ef einhver veit um ferð vestur með örlitlu aukaplássi fyrir smá teygjur og tvinna, þá er sá hinn sami beðinn um að láta glyðrurnar Hjördísi eða Eygló vita hið snarasta.
Kv. Gló Magnaða
Tenglar
Mikilvægir tenglar
Það sem skiptir máli
- Páll Önundarson
- Mýrarboltinn á Ísafirði Það sem málið snýst um
- Langi Mangi ehf. Kaffihúsið þar sem hlutirnir gerast
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og svo þarf að stilla upp í lið... Pant vera í marki allan tímann eða bara í tjaldbúðunum.
Guðrún (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 17:22
Hvaða bull er þetta Guðrún.
Sterkasti verjumaður liðsins verður að vera í vörninni.
Gló (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 21:20
Ehehehe smá teygjur og tvinna...
Guðrún, ekkert væl! Þú tekur þetta á hörkunni!
Hjördís Þráinsdóttir, 26.7.2007 kl. 01:59
......er í samningaviðræðum við erlendan leikmann sem mun leika með GLYÐRUNUM ef hún fær sig lausa frá Real Madrid.....lék víst á árum áður með Boca Juniors í Argentínu og gekk í knattspyrnuskóla Maradonna þegar hún var yngri.......já við erum laaaaaangflottastar ;-)
Gunna Guggu (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.